Fyrirlestrar sem byggja á reynslu, ekki bara kenningum
Bransasögur, það sem gekk vel og hitt líka
Flestar stefnur líta vel út á glærum en missa flugið í daglegum rekstri. Áskorunin er sjaldnast stefnan sjálf, heldur framkvæmdin þegar hraðinn er mikill, verkefnin mörg og tengingin við daglegt verklag veik. Þar verða til síló og verkefni sem enginn á.
Sem fyrrum framkvæmdastjórar þekkjum við þetta af eigin raun. Í þessum fyrirlestri sýnum við hvernig hægt er að skapa skýrari fókus, framkvæmd og samstillingu þannig að stefnan verði lifandi verkfæri en ekki bara plaggat á vegg. Stefna skilar engu virði ef starfsfólk skilur hana ekki eða sér ekki hvernig hún tengist þeirra daglega starfi.
Ávinningur:
Skýrari fókus: Sameiginleg sýn á forgangsröðun í daglegum rekstri.
Sterkari framkvæmd: Verkfæri til að festa innleiðingu breytinga í sessi.
Betri samvinna: Samstilling á milli deilda og skýr ábyrgð.
Tími: Um 40 til 60 mínútur.
Fyrirtæki fjárfesta mikið í tækni, sjálfvirkni og gervigreind, en gleyma stundum að tæknin er aðeins verkfæri. Viðskiptavinurinn finnur það strax þegar ferlar verða kaldir, flóknir og of vélrænir.
Í þessu erindi sýnum við hvernig má nýta tækni til að einfalda þjónustu og styðja starfsfólk. Við deilum reynslu af innleiðingum þar sem markmiðið var að lækka rekstrarkostnað og auka ánægju viðskiptavina. Við ræðum hvað þarf til þess að stafrænar lausnir skili árangri en ekki bara fleiri kerfum. Tæknin á að létta vinnuna svo fólkið þitt hafi tíma fyrir viðskiptavininn.
Ávinningur:
Skýrari þjónusta: Stafræn ferli sem virka fyrir viðskiptavininn.
Einfaldari rekstur: Færri kerfi, minni flækja og betri nýting á tækni.
Svigrúm í framlínu: Tækni sem léttir vinnuna svo starfsfólkið geti sinnt viðskiptavinum betur.
Tími: 40 til 60 mínútur.
Leiðirnar til að bæta upplifun viðskiptavina eru nánast óendanlegar. Á þessari vinnustofu rýnum við í raunverulegt ferðalag viðskiptavinarins, allt frá því að þörfin vaknar og þar til viðskiptum lýkur. Við vinnum beint með dæmi úr ykkar rekstri til að finna tækifæri sem hægt er að lagfæra eða bæta strax.
Vinnustofan er hönnuð fyrir stjórnendur og teymi sem vilja hagnýt verkfæri til að auka ánægju, tekjur og tryggð viðskiptavina með samræmdri þjónustu.
Það sem við förum yfir:
Kortlagning ferðalagsins: Hvar á að byrja þegar ferlið er flókið og hagsmunaðiilar margir?
Snertifletir og samræmi: Hvernig tryggir þú að vörumerkið standi við gefin loforð.
Raunveruleg dæmi: Við greinum ykkar rekstur svo þið farið út með verkefni sem hægt er að vinna með strax.
Tími: 120 mínútur.
Sálfræðilegt öryggi snýst um að fólk þori að tjá sig, spyrja, vera ósammála og viðurkenna mistök án þess að óttast neikvæðar afleiðingar. Hér er farið á dýptina í hvernig hegðun stjórnenda hefur bein áhrif á það hvort slíkt umhverfi skapist eða ekki.
Þegar sálfræðilegt öryggi er til staðar koma áskornair fyrr upp, ákvarðanir verða betri og ábyrgð og frumkvæði eykst. Þegar það vantar verður þögnin oft ráðandi og upplýsingar berast of seint. Fjallað er um hvað sálfræðilegt öryggi er (og er ekki), hvernig þögn birtist í teymum, hvað hefur reynst vel og hvernig stjórnendur geta tekið einföld skref strax með eigin teymi.
Fyrirlesturinn er ætlaður stjórnendum, teymisstjórum og skipulagsheildum sem vilja efla traust og samskipti. Áherslan er á hagnýta nálgun og tengingu við daglegt starf, þar sem kjarni málsins er sá að sálfræðilegt öryggi mótast ekki af stefnum heldur af því hvernig stjórnendur bregðast við þegar á reynir.
Tími: Um 60 mínútur.
Við skoðum hvernig skýrir rammar, aukið sjálfstraust og rétt þjónustuhugsun bæta upplifun viðskiptavina og árangur í rekstri. Hér færðu hagnýt dæmi og nálgun sem fólk getur nýtt strax í sínu starfi.
Framlínan ber hitann og þungann þegar álagið eykst og væntingar viðskiptavina verða meiri. Í þessum fyrirlestri sleppum við flóknum kenningum. Við sýnum hvað skapar sterka þjónustumenningu og hvernig þú byggir upp starfsfólk sem tekur ábyrgð. Markmiðið er að starfsfólkið eigi góð samskipti og hafi verkfærin til að leysa úr málum af öryggi og festu.
Ávinningur:
Sterkari þjónustumenning: Skýrari rammar og samræmd þjónusta.
Aukið öryggi: Starfsfólk sem höndlar álag og samskipti af festu.
Hagnýt verkfæri: Lausnir sem hægt er að grípa til strax.
Tími: 45 mínútur.
Strategísk ráðgjöf
Fyrirtæki og stjórnendur leita til okkar þegar þau vilja hrinda breytingum í framkvæmd, ekki bara ræða þær.
Menning og stjórnun: Við hjálpum fyrirtækjum að tengja saman stefnu, stjórnun og daglegt starf. Menning er ekki það sem stendur í glærukynningu heldur það sem fólk gerir á hverjum degi.
Mannauðsþróun: Við hönnum fræðslu og þjálfun sem tekur mið af raunverulegum verkefnum og áskorunum. Markmiðið er ekki að fylla dagatalið heldur að byggja upp færni sem nýtist í starfi.
Upplifun viðskiptavina (CX): Við skoðum alla snertipunkta viðskiptavinarins og hjálpum fyrirtækjum að skapa samræmda og góða upplifun sem styrkir tengsl og eykur traust til vörumerkisins.
Við mætum með orku, festu og hagnýt verkfæri sem virka í raunveruleikanum.
Markmið okkar er einfalt: að breyta stefnu í aðgerðir sem skila raunverulegum árangri. Við þekkjum áskoranirnar á eigin skinni og vitum að framkvæmdin er það sem telur.