Tengslahringurinn

Samfélag og vettvangur sem sem leiðir saman fólk sem vill efla tengslanetið, miðla þekkingu og vaxa í lífi og starfi. Samfélag fyrir alla sem vilja víkka sjóndeildarhringinn.

Tilgangur Tengslahringsins er einfaldur: að skapa óformlegt samfélag fólks sem vill styrkja tengslanetið sitt, hitta gott fólk yfir kaffibolla og hafa svolítið gaman.

Við viljum skapa vettvang þar sem fólk getur hist, spjallað, deilt reynslu og lært hvert af öðru. Við ræðum allt frá áhrifum og leiðtogahæfni yfir í áskoranir í lífi og starfi, nýjar hugmyndir og það sem getur hjálpað okkur að taka næstu skref.

Tengslahringurinn er óhagnaðardrifinn og byggir á þeirri trú að góð tengsl skipti máli. Við hittumst einu sinni í mánuði, fáum fræðslu eða innsýn í áhugavert efni og gefum okkur svo tíma til að spjalla, kynnast og byggja upp tengsl.

Ef þetta talar til þín, þá ertu hjartanlega velkomin.