Tengslin á milli fólks, þjónustu og árangurs

Ósk Heiða Sveinsdóttir

Ósk Heiða hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi í atvinnulífinu, meðal annars sem framkvæmdastjóri Viðskiptavina hjá Póstinum og markaðsstjóri hjá Krónunni og Íslandshótelum. Á ferlinum hefur hún leitt stór teymi og borið ábyrgð á sölu, þjónustu, markaðsstarfi, vefmálum og stafrænni vegferð í umhverfi þar sem hraði, kröfur og væntingar eru miklar.

Hún hefur stýrt umfangsmiklum breytingum og leggur áherslu á að tengja saman mannauð, þjónustu og rekstrarlegan árangur. Ósk trúir því að sterk teymi, skýr stefna og ábyrgð séu lykillinn að betri upplifun, meiri árangri og þjónustu sem skilar raunverulegu virði. Þegar spilað er með sterku teymi sem fær stuðning og svigrúm til að vaxa, verða til sigrar.

Gunnur Líf Gunnarsdóttir

Gunnur hefur margar ára reynslu af sölu, þjónustu og mannauðsmálum, þar sem hún hefur meðal annars unnið sem framkvæmdastjóri verslunar og mannauðssviðs hjá Samkaupum. Hún hefur einstakt innsæi í þróun starfsfólks og byggingu sterks og samheldins teyms.

Gunnur hefur sannað sig sem frábær leiðtogi og kennari, með þann hæfileika að tengja teymisvinnu við raunverulegt líf og starfsemi fyrirtækisins. Hún leggur mikla áherslu á einstaklingsþróun, kennslu og fræðslu, og hvatti starfsfólk til að ná sínum bestu möguleikum. Með áherslu á jákvætt starfsumhverfi og vöxt starfsfólks, stuðlar hún að aukinni ánægju bæði allra í teyminu og viðskiptavinum.

Allt snýst þetta um tengsl

Tengslin milli mannauðs og markaðsmála

Það er ekki hægt að auglýsa sig út úr lélegri upplifun.

Tengslin milli tekna og þjónustu

Þjónusta er ekki kostnaður sem þarf að lágmarka. Hún er ákvörðun sem hefur bein áhrif á tekjur og samkeppnisforskot.

Tengslin milli húmors og alvöru

Fræðsla á að vera gagnleg og lifandi. Tengjum húmor og hagnýta þekkingu sem fólk man eftir.