Eftir tímabil breytinga og innleiðinga tekur við mikilvægasta ferlið: að byggja upp eina heild, skapa sameiginlega menningu og hjálpa fólki að fóta sig í nýjum veruleika. Menning snýst ekki bara um skipurit, ferla og verkaskiptingu, hún snýst fyrst og fremst um fólk.
Hvað gerist þegar það sem við þekktum breytist? Hvernig myndast „við og þau“ og hvað þarf til að færa okkur yfir í „við saman“? Hvað gerist þegar stefnan mætir mánudeginum? Þekkir þú neikvæða Njál eða peppuðu Pálínu, hvernig gengur þeim að vinna saman?
Þetta er léttur og skemmtilegur vinnustofufyrirlestur þar sem við skoðum mannlegu hliðina á breytingum og hvernig við byggjum upp traust og menningu þar sem árangur næst og starfsánægja ríkir.
Það sem við förum yfir:
Dýpri skilningur á viðbrögðum: Aukin innsýn í eigin viðbrögð og annarra við breytingum og óvissu.
Frá „við og þau“ í „við saman“: Verkfæri til að dýpka sálrænt öryggi, bæta samskipti og efla samvinnu.
Hagnýt lokaæfing (Keep / Let go / Create): Skýr mynd af því hvað eigi að taka með sér inn í næsta kafla, hverju þurfi að sleppa og hvað eigi að skapa saman.
Sameiginleg upplifun og góð orka: Léttar og skemmtilegar áskoranir í hópum þar sem reynir á aðlögunarhæfni þegar forsendur breytast.
Tími: 120 mínútur (60 mín fyrirlestur og 60 mín af leikjum sem allir geta getið þátt í).