Mikilvægi þjálfunar og þróunar í fyrirtækjum
Hraðar breytingar, auknar kröfur og harðari samkeppni orðin hluti af daglegum veruleika fyrirtækja. Í slíku umhverfi er mannauðurinn ein mikilvægasta auðlind hvers fyrirtækis. Þjálfun og þróun starfsfólks gegnir þar lykilhlutverki, ekki aðeins til að viðhalda hæfni heldur einnig til að efla nýsköpun, auka starfsánægju og tryggja langtímaárangur.
Þetta er þó ekki sjálfgefið. Í mörgum fyrirtækjum hefur fræðsla lengi verið jaðarverkefni. En þegar hún er færð inn í kjarnann sem stefnumarkandi ákvörðun studd af stjórnendum og fjárfestingu getur hún umbreytt bæði menningu og árangri.
Gott dæmi um slíka umbreytingu má sjá hjá BM Vallá, sem hlaut Menntaverðlaun atvinnulífsins 2026. Hjá fyrirtækinu hefur markviss uppbygging fræðslu breytt viðhorfum, aukið þátttöku og skilað mælanlegum árangri í bæði mannauði og rekstri.
Hvað felst í þjálfun og þróun?
Þjálfun vísar til markvissra aðgerða sem miða að því að bæta færni og þekkingu starfsmanna í tengslum við núverandi starf þeirra. Þróun er hins vegar víðtækara hugtak sem snýr að persónulegum og faglegum vexti starfsmanna til framtíðar, þar á meðal leiðtogahæfni, stefnumótun og aðlögunarhæfni.
Þessi tvö hugtök vinna saman að því að skapa sterkan og sveigjanlegan mannauð sem getur brugðist við breytingum og tekið þátt í framþróun fyrirtækisins.
Reynsla fyrirtækja eins og BM Vallár sýnir að þegar bæði þjálfun og þróun eru skipulögð sem heildstæð nálgun en ekki stök verkefni að þá verður til raunveruleg hæfniuppbygging sem nýtist í daglegu starfi.
Fyrirtæki sem leggja áherslu á þjálfun og þróun njóta fjölmargra kosta:
Aukin framleiðni: Starfsmenn með rétta þekkingu og færni vinna skilvirkar og gera færri mistök.
Betri nýsköpun: Þjálfun ýtir undir skapandi hugsun og lausnamiðaða nálgun.
Aukin starfsánægja: Starfsmenn sem fá tækifæri til að vaxa í starfi eru líklegri til að vera ánægðir og tryggir vinnustaðnum.
Minni starfsmannavelta: Fjárfesting í starfsfólki eykur hollustu og dregur úr kostnaði við ráðningar og þjálfun nýrra starfsmanna.
Þetta eru ekki aðeins fræðilegir kostir. Hjá BM Vallá hefur aukin áhersla á fræðslu skilað sér í aukinni þátttöku starfsfólks, bættri vellíðan og lægri starfsmannaveltu, auk þess sem áhrifin endurspeglast í sterkari rekstri og aukinni þjónustugæðum.
Uppbygging mannauðs
Uppbygging mannauðs snýst um að skapa umhverfi þar sem starfsmenn geta þróast og blómstrað. Það felur í sér:
Markvissa fræðslu og símenntun
Skýra starfsþróunarstefnu
Reglulega endurgjöf og árangursmat
Leiðtogþjálfun og stuðning við framtíðarleiðtoga
Slík uppbygging gerir fyrirtækjum kleift að þróa innri hæfileika í stað þess að treysta eingöngu á utanaðkomandi ráðningar.
Í tilfelli BM Vallár hefur þessi nálgun verið studd með aukinni fjárfestingu í fræðslu, þróun nýrra fræðsluleiða og skýrri tengingu við stefnu fyrirtækisins. Niðurstaðan er sterkari liðsheild, aukið sjálfstraust starfsfólks og menning þar sem lærdómur er hluti af daglegu starfi.
Hlutverk stjórnenda það mikilvægasta
Sú vísa verður ekki of oft kveðin, að stjórnendur gegna lykilhlutverki í að stuðla að árangursríkri þjálfun og þróun. Það er ekki aðeins á herðum fræðslustjóra eða mannauðsstjóra, heldur þurfa allir að stuðla að uppbyggingu á lærdómsmenningu með því að vinna saman að því að:
Greina þjálfunarþarfir
Hvetja til náms og umbóta
Styðja við starfsþróun starfsmanna
Skapa jákvæða lærdómsmenningu
Þegar stjórnendur taka virkan þátt verður þjálfun hluti af daglegu starfi en ekki einangrað verkefni.
Umbreytingin hjá BM Vallá undirstrikar þetta skýrt. Þar varð lykilbreytingin ekki aðeins í fræðsluframboði, heldur í því að stjórnendur tóku meðvitaða ákvörðun um að setja mannauð og fræðslu í forgang og fylgja því eftir með aðgerðum og fjármagni.
Aldrei verið mikilvægara!
Þjálfun og þróun eru ekki aukaatriði heldur nauðsynleg fjárfesting í framtíð fyrirtækja. Með því að byggja upp sterkan mannauð geta fyrirtæki aukið samkeppnishæfni sína, aðlagast breytingum og skapað sjálfbæran árangur.
Reynslan sýnir að þegar fræðsla er gerð að stefnu en er ekki tilviljun þá breytist ekki aðeins hæfni starfsfólks heldur menning fyrirtækisins í heild.
Fyrirtæki sem leggja rækt við starfsfólk sitt, líkt og BM Vallá, eru betur í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar og nýta þau tækifæri sem hún býður upp á.
Höfundur:
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, kennari í námskeiðinu Þjálfun og Þróun við meistaranám Háskólans á Bifröst og studdi við BM Vallá í vegferð sinni að Menntaverðlaunum atvinnulífsins 2026.