Hið mannlega í sjálfvirkum heimi
Við lifum á tímum þar sem kerfi verða sífellt snjallari, hraðari og sjálfvirkari. Ferlar er einfaldaðir, ákvarðanir gagnadrifnar og samskipti færð á stafrænt form. Þörfin fyrir það sem ekki er hægt að forrita vex. Tengsl, traust og raunverulegt samtal milli fólks. Hið mannlega verður ekki aðeins mikilvægt, það verður samkeppnisforskot.
Rannsóknir styðja það sem margir hafa upplifað á eigin skinni. Sterk tengsl, bæði persónuleg og fagleg, skipta raunverulegu máli. Ekki vegna þess að þau séu eitthvað sem hægt er að mæla eða snerta, heldur vegna þess að tengsl opna aðgang að upplýsingum, sjónarhornum og tækifærum sem annars fengust ekki. Eins og sagt er, maður er manns gaman.
Við heyrum oft talað um skilvirkni, umbreytingu og samlegðaráhrif. Sjaldnar er rætt um tengsl sem innviði eða jafnvel auðlind, þótt flestir stjórnendur viti af eigin reynslu að árangur verður til þegar það mannlega fær að spila með tækni og nýsköpun. Hugmyndir kvikna í samtölum. Tækifæri verða til þegar fólk treystir hvert öðru. Flóknar ákvarðanir verða betri þegar þær eru speglaðar við aðra.
Við fundum þessa þörf skýrt í eigin samtölum og sáum tækifæri. Hvar hittist fólk sem vill ræða, spegla, tengja og hugsa upphátt, án dagskrár, án kröfu um árangur og án þess að vera í sölugír? Úr þeirri spurningu varð Tengslahringurinn til. Ekki sem formlegt prógramm, heldur sem einföld hugmynd og smá frumkvæði. Við settum út boð, hittumst yfir kaffibolla og bjuggum til pláss fyrir manneskjur og tengsl. Við vissum ekki nákvæmlega hvað myndi gerast, aðeins að þörfin væri til staðar. Í dag eru 550 manns hluti af hópnum Tengslahringurinn á LinkedIn. Allir velkomnir og opið, fólk úr ólíkum geirum og á mismunandi stöðum í lífinu hittist, ekki til að safna tengiliðum heldur til að ræða, hlusta og læra hvert af öðru. Það sem hefur komið á óvart er hversu mikils virði einföld samtöl geta verð. Kryddið eru svo fyrirlestrar og innblástur sem við finnum með því að bjóða áhugaverðum aðilum í okkar tengslaneti að koma og vera með hugvekju.
Í heimi sem verður sífellt tæknivæddari og sjálfvirkari má ekki vanmeta það sem ekki verður mælt eða skráð í töflureikni. Tengsl eru þó ekki mjúkt aukaatriði í rekstri eða samfélagi, þau eru burðarás. Fyrirtæki, stofnanir og samfélög sem átta sig á því standa sterkari til lengri tíma. Tengslahringurinn er okkar framlag í þessa átt, til að styrkja samfélagið, bjóða fólk velkomið og byggja upp rými til að tilheyra. Áminning um að þótt sjálfvirkni og gerfigreind taki meira pláss þá mótast framtíðin áfram af fólki, með og í samskiptum við annað fólk.