Breytingar snúast um fólk, og stundum blöðrur

Sterk liðsheild verður ekki til af sjálfu sér. Hún byggist upp þegar ólíkt fólk lærir að vinna saman, takast á við breytingar og stefna í sömu átt. Hvernig byggjum við upp sterka liðsheild þegar hlutirnir eru á hreyfingu?

Þetta voru meðal þeirra spurninga sem við stöllurnar á bak við Tengslin veltum upp með frábærum hópi starfsfólks Iceland Travel. Undir yfirskriftinni The Human Side of Change var markmiðið að skoða mannlegu hliðina á breytingum, bæði frá sjónarhóli einstaklinga og hópsins í heild. Við ræddum meðal annars ólík viðbrögð við breytingum, mikilvægi trausts og sálræns öryggis og hvernig teymi geta forðast að festast í „við og þau“ en þess í stað styrkt tilfinninguna fyrir „við saman“.

Með svona sterkan hóp samankominn létum við ekki þar við sitja. Við fléttuðum fræðslu og raunverulegum dæmum saman við umræður, æfingar og leiki þar sem reyndi á samvinnu, samskipti og hæfileikann til að bregðast við þegar forsendur breytast. Það var hlegið, pælt og tekist á við áskoranir. Það er nefnilega hægt að læra heilmikið um sjálfan sig og samstarfsfólkið þegar maður fær tækifæri til að prófa hlutina í verki.

Eitt af því sem við lögðum sérstaka áherslu á var að breytingar snúast ekki bara um það sem þarf að breytast. Þær snúast líka um það sem við viljum taka með okkur áfram, hverju við þurfum að sleppa og hvað við viljum skapa saman. Við fórum því ekki bara yfir hugmyndir og ferla, heldur spáðum líka í týpurnar og ræddum alls konar bras og ves sem við höfum sjálfar lent í á okkar ferli.

Við enduðum daginn á blöðrum, hlátri og smá keppnisskapi. Það var kannski ekki hefðbundin leið til að ljúka fræðslu um breytingar, en það passar bara svo vel að blanda saman námi og því að hafa gaman.

Við viljum þakka starfsfólki Iceland Travel kærlega fyrir frábærar móttökur, opið hugarfar, þátttökuna og ekki síst orkuna sem fylgdi okkur í gegnum vinnustofuna. Það er ekki sjálfgefið að fá hóp sem er jafn tilbúinn að taka þátt og hafa gaman af því í leiðinni. Það er einmitt þegar fólk tekur þátt, deilir reynslu og lærir hvert af öðru sem góð vinnustofa verður að jákvæðri upplifun.

Takk fyrir okkur. Þetta var frábær dagur og einstakt teymi.

Next
Next

Þjónusta er ekki bara kostnaður. Hún er ákvörðun.