Við sköpum tengslin

milli rekstrar og mannauðs

Þar sem ,,mjúku” og ,,hörðu” málin mætast

Þar sem framkvæmdin fær orðið

Það sem aðgreinir okkur er reynslan úr efstu lögum íslensks atvinnulífs. Við höfum stýrt stórum liðsheildum, setið við stjórnarborðið, innleitt viðamiklar breytingar og borið ábyrgð á niðurstöðunni.

Ósk Heiða kemur með reynsluna úr markaðsmálum, sölu, þjónustu og stafrænni umbreytingu. Hún þekkir hvernig byggja má upp upplifun sem skapar traust, tryggð og tekjur. Gunnur Líf brennur fyrir því að virkja það dýrmætasta sem fyrirtæki eiga: fólkið. Hennar reynsla af mannauðsmálum, rekstri og stjórnun gerir henni kleift að skapa liðsheild sem nær settum markmiðum.

Saman tengjum við það sem stundum er fjallað um sitt í hvoru lagi: fólk og árangur, menningu og rekstur, mjúku og hörðu málin.

Árangur verður ekki til í Excel-skjali. Hann verður heldur ekki til af góðum ásetningi einum. Hann verður til þegar stefna, rekstur og fólk vinna saman. Í dag er ekki hægt að skilja á milli mannauðs, þjónustu og rekstrar. Upplifun viðskiptavina verður aldrei sterkari en menningin sem stendur að baki henni. Fyrirtæki skortir sjaldnast metnað. Áskorunin felst í að tengja stefnuna við daglegan veruleika og fylgja eftir í framkvæmd.

Við heitum Ósk Heiða Sveinsdóttir og Gunnur Líf Gunnarsdóttir. Bakgrunnur okkar liggur í framkvæmdastjórnum hjá nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins þar sem við höfum leitt breytingar og borið ábyrgð á tekjum, þjónustu og stórum teymum í krefjandi rekstri.

Við þekkjum virði þess þegar stefna og framkvæmd vinna saman og kostnaðinn sem hlýst af því þegar sú tenging rofnar.

Þar liggja Tengslin.

Minni froða, meiri framkvæmd

Þjónusta og sala

Þjónusta er ekki kostnaður heldur stefnumarkandi ákvörðun. Upplifun viðskiptavina mótast af þjónustu og vinnubrögðum. Þegar þessir þættir vinna saman styrkjast tengslin .

Mannauður

Sterk menning byggist ekki á slagorðum heldur skýrum væntingum, ábyrgð og fólki sem skilur hlutverk sitt. Starfsánægja og árangur fara saman þegar framkvæmdin er skýr.

Framkvæmd og festa

Stefnumótun er auðveldi hlutinn. Framkvæmdin er prófið. Við tölum um ábyrgð, skýran fókus og hvernig skapa má festu þegar hraði og kröfur eru miklar.

Stjórnendur

Forysta snýst ekki um fallegar glærur eða stór orð. Hún snýst um að skapa skýrleika, ryðja hindrunum úr vegi og byggja upp teymi sem geta tekið ábyrgð og náð árangri.